Varúð: Grínari á ferð!

funny_monkey

Þessi api veit um fátt skemmtilegra en að stríða og galsast í kettlingum. Sérstaklega tígrisdýrakettlingum. Hann sveiflar sér fram og aftur, upp og niður og togar í skottið á þeim eins og hann fengi borgað fyrir það. Auk þess gefur hann þeim einn á lúðurinn af og til, svona rétt til að þakka fyrir að leyfa sér að skemmta sér svona vel.

Kíkið á myndbandið til að sjá grínarann:


Bo Diddley

Ég biðst afsökunar á að hafa ekki skrifað neinar færslur undanfarna daga. Ég hef verið á Hawaii, njóta lífsins, drekkandi Cocos martini og reykjandi vindla á ströndinni. En aftur er ég kominn. 

bodiddley

Tónlist (og bílar reyndar) eru hlutir sem ekki batna með tímanum að mínu mati. Sjálfur hef ég frekar áhuga á að renna niður laugarveginn í Chevrolet 56 með Buddy Holly í botni heldur en að slefa þetta á B.M.W (Bilar Meira en Venjulega) með Benz Club í hátölurunum eða Páli Óskarssyni Hvað um það.

chevy56

Bo Diddley var og er einn, af þessum risum í rokkinu. Maðurinn var snillingur. Hann náði að skapa sinn eigin hljóm, sem hvítir fávitar vildu endilega flokka undir svokallað "Jungle boogie" eða frumskógar rokk, vegna þess að Diddley var svartur, og var Diddley oftar en ekki kallaður á þessum tíma "The Jungle Beast" af fáfróðum hvítum kynþáttahöturum og ösnum, sem sjálfir höfðu barist við nasista í seinni heimstyrjöldinni.

-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Bo Diddley fæddist í Missisippi árið 2008 og lést árið 1928. Hann var semsagt "framúrstefnumaður". Ég ætla ekki að fara að tíunda hér ævi Bo Diddley, það hafa aðrir betri skrifarar gert. En Bo var mjög sérstakur að því leyti að hann kom með nýtt "Beat" inn í rokkið. Allt svo nýjan takt. Lagið "Bo Diddley"  einkennist einmitt af þeim takti. Ég veit ekki hvernig á að lýsa honum. Einhverskonar harður taktur, ekki endilega hraður heldur svokallað "Jungle Beat" eins og menn vildu kalla hann. Ég læt fylgja með þessari færslu, 2 video með Bo Diddley, svo þið sem ekki þekkið Bo, getið áttað ykkur á hvað ég er að meina.

Segið svo að ekkert hafi verið fyrir Jimi Hendix!

 

 

 

 

 


Þeir hljóta að skila sér...

thom300Þessir lagaprúðu menn hljóta að skila sér fyrst þeir voru hvattir til að mæta á lögreglustöðina. Trúi ekki öðru. Annars hefur byssueign íslendinga aukist til muna og eru það gleðifréttir. Minnsta kosti á meðan mafíur frá austur evrópu setjast hér að í stríðum straumum og ógna okkur. Þá er lítið annað að gera enn að plaffa þetta lið niður. Það er allavega mín skoðun. Hvað finnst ykkur?
mbl.is Skotið á hús í Keflavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttamennska stöðvar 2.

tófa2

Ég horfði á sjónvarpsfréttir stöðvar 2 í kvöld. Fyrstu fréttirnar voru um handbolta "afrek" íslendinga í Peking. Fyrsta fréttin var um stöðu íslendinga á ólympíuleikunum, og viðtöl við fólk í kringlunni (þar sem reyndar 90% þeirra höfðu engan áhuga á þessu rugli og ætluðu ekki að fylgjast með úrslitaleiknum.)

Önnur fréttin í handboltahrynufréttum stöðvar 2 snerist um faðir eins handbolta mannsins og ég man ekki um hvað sú þriðja var, enda ómerkileg. Þessar fréttir tóku að minnsta kosti 6-7 min.

Ernir

Önnur frétt stöðvar tvö var hins vegar áhugaverð. Hún var um varaforsetaefni Barack Obama. Þeir ætla að koma fram í kvöld í live TV í fyrsta skipti, en Joseph Biden hefur samt sem áður verið sá maður sem mest hefur gagnrýnt Obama fyrir reynsluleysi í stjónmálum. Þetta er raunverulega stærsta fréttin. Þessi frétt tók um það bil 50 sek.

Næsta frétt var um mink sem hafði slæðst til krakka einhverstaðar út á landi. Fréttin var löng og ítarleg. Myndir birtust af minknum í búri og ítarlegt viðtal var við heimilisföðurinn (eða dýralækni, man ekki hvort var) Þessi frétt tók 5 mínútur.

Því spyr ég, hvað er að gerast hjá íslenskum fréttamönnum??? Hafa þeir ekkert annað að segja frá öðru en handbolta og minkum???

 


Captein Beefheart

Captein Beefheart er einn mesti snillingur okkar tíma að mínu og hans mati. Honum finnst skemmtilegra að gera sína tónlist heima í hjólhýsinu sínu heima í Nevada, og mála málverkin sín heldur en að búa að ríkborgarabrag í California. Beefheart er búinn að vera að síðan 64-5 og er enn í dag ´5 gír. Gaman er að segja frá því að Beefheart er æskuvinur Frank Zappa. Ég læt hér fylgja tvö video af meistaranum, annað með myndandbandi við Ice Creams for Crow og hitt er þegar hann mætti blindölvaður í vitðal í beinni útsendingu hjá Davíð Leðurmanni.

Captain Beefheart í joðinu sínu


Hommagangan!

Hommar tóku sig saman eins og svo árlega og röltu niður Laugarveginn síðustu helgi. Þetta er einhverskonar "stoltganga" hommana, en hún er eina skrúðgangan sem hommum er leyft að vera með í svo best sem ég veit. Eitthvað fréttist af sprengjuhótunum fyrir röltið en sú hótun barst til baka eftir gönguna, sem betur fer. Ég óska hommum og þeirra eiginmönnum til hamingju með röltið. Þetta er eitthvað sem ætti að vera einu sinni í viku!

hommi 1

 


Styttist í plötuna Hang Em High - Tóndæmi -

Nú styttist óðum í fyrstu plötu Blues Willis og er verið þessa dagana að klára masteringu og cover gerð. Við vonumst að platan sem er contry plata nái að koma út eigi síðar en í September.

Ég ákvað að skella hingað inn á bloggið einu lagi í tónspilarann. Lagið er ekki sungið af neinum öðrum en The reverent Bjöggi Dallas og vill svo skemmtilega til að lagið heitir einmitt Ballad of Dallas og er sungið á íslensku, en það er eina lagið á plötunni sem sungið er á því framandi tungumáli.

Lagið er eitt lag af 12 laga plötu.

 Rodeo


Hvurslags óumburðarlyndi er þetta??

jack_daniels 

Hvurslags óumurðalyndi er þetta eiginlega? Hvernig á rokkarinn að getað unnið öðruvísi en að fá sinn skammt af Whiskey-i? Drekka Malt og Appelsín? Á hann ekki bara að kapa Egils verksmiðjurnar??

Það eru óskrifuð lög, að rokkarar, eiga að geta flutt inn eins mikið magn af áfengi og þer vilja, hvar og hvenær sem er.

Í fjórtándu grein rokk-laga frá árinu 1957 segir skýrt:

"Ekki er heimilt að hemla rokkarann í að flytja, né neita, ótakmarkaðs magns a Whiskey-i, Vodka, Bjór eða öllum öðrum þeim áfengistegundum sem eru yfir 4,5%. Þá skal rokkaranum heimilt að rífa kjaft, sem og svara fyrir sig, á þann hátt er hann kýs, sé honum heftuð drykkja af slíku tagi."

Þetta kalla ég ekkert nema stæla hjá aumum tollurum, til að slá þorsta sinn í ofsóknarbrjálæði og valdafíkn.

Þetta mál á að fara rakleitt til mannréttindardómstóls S.Þ


mbl.is Taldi viskíið nauðsynlegan hluta af vinnunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stormsker VS Guðni

Hin umtalaði Guðnskers-þáttur á Útvarpi Sögu hefur tröllriðið öllum bloggum klakans að undaförnu,   alveg síðan flutturinn var þáttur. Guðni kom ekkert sérstaklega vel út í þættinum. Varð hálf vandræðalegur undir lokin, og vildi helst flýja, sem hann og gerði. Aldrey hefur formaður skipulags stjórnmálagflokks áður yfirgefið viðtal í beinni útsendingu. Ekki svo ég viti allavega.

Guðni

Sverrir spurði eðlilegustu spurningar, eins og hvort Guðni heðfi einhverntíma tekið Belju í fjósið, en Guðni roðnaði bara og labbaði út. Ég hef alltaf haft dálæti á Guðna og hann kom mér verulega á óvart í þessum þætti. Hann fór alltaf að tala um Nýja Sjáland. Skrýtið...

Guðni Ágústsson


David Hasselhoff

Hasselhoff er frábær náungi. Ágætisleikar og snilldarsöngvari. Ég t.d hlæ aldrey eins mikið eins og þegar ég hlusta á David Hasselhoff syngja. Og hvað á tónlist að gera annað enn að skemmta fólki?

Nýlega birtist fram skemmtilegt video af Hasselhof, borða hamborgara með dóttur sinni. Fólk virðst eitthvað að vera að gagnrýna myndbandið. Ég skil það ekki. Venjulegt fallegt fjölskylduvideo af föður snæða hamborgara með dóttur sinni. Eina ranga við videoið er að mér finnst Hasselhoff heldur betur þurfa á drykk að halda....

Hér er svo eitt af mínum uppáhaldsmyndböndunum mínum frá Davíð:


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Siggi Lee Lewis

Höfundur

Siggi Lee Lewis
Siggi Lee Lewis

The problem with the world is that everyone is a few drinks behind

Jukebox

Blues Willis - Skeiðar fram á veg
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Buck Green ásamt Ástríki eftir fund
  • Sveinbjörn
  • Ástríkur
  • ...-promo-shot
  • ..._s_platters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 23618

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband