Apar fá vinnu á japönskum veitingastöðum.

monkey-1

 

Japanir hafa löngum verið þekkti fyrir framúrstefnu og nýstárlegheit. Nú þegar kreppan herðir að í Asíu hafa japanskir veitingamenn tekið upp á því að ráða apa í þjónustustörf, enda harla flókið að bera fram veitingar.

Hér er linkur á video sem ég rakst á, video af apa þjóna til borðs á japönsku veitingarhúsi:

http://news.bbc.co.uk/2/hi/in_depth/7654267.stm 

Sjálfur hef ég hef einu sinni unnið við að þjóna fólki. Svoleiðis vinnu mun ég seint sækja um aftur, enda vil ég frekar að aðrir þjóni mér.  Videoið er samt ekki af mér, heldur japönskum apa.

g855233_cute_monkey

Íslenska þjóðin er að gefast upp í fyrsta skipti.

depression-family-3

 

Íslendingar eru að drepast úr kreppu. Þeir hafa ekki lengur efni á að eiga sinn eigin bíl. Íslendingar hafa varla efni á að kaupa sér nautasteik á grillið! Einn Íslendingurinnn varð alveg steindofa er hann fékk ekki 09 Mercedes Benz á 100% láni um daginn.

 

Barn1

Íslendingar verða nú að fara að éta svínakjöt úr Bónus og auka brauðneyslu með úrvals áleggi. Þeir verða að fara að skutla ástvinum og vinum sínum í skóla og vinnu til að spara eldsneyti.

 

Þetta er áhyggjumál! Sérstaklega þegar fólk í Afríku deyr úr hungri og sefur á sléttunni. Almenningur í Afríku fagnar matarleifum.Sumir segja mér að ekki sé hægt að miða Ísland við Kongo. en ég sé engan mun. Árið er 2008 bæði á Íslandi og í Kongo.

100_1741

 

 

 


October Fest á Íslandi!

oktoberfest2

 

October Fest verður haldin hér á Íslandi daganna 9-11 Október, og fögnum við því. Dagskráin er verður lauslega þessi:

------------------------------------------------------------- 

Fimmtudagur:

Kl. 17:00 Opnunarhátíð með þýskasendiherranum og fallegum þýskum hljómum

20:00 þýskt Bingóþýskt sjónvarpsefni

-------------------------------------------------------------

 

Föstudagur:

Búningakeppni - Hver mætir í þýskasta búningnum

Mottukeppni - Hver er með glæsilegustu mottuna

Drykkjukeppni milli deilda - Hægt er að skora á deild/deildir í drykkjukeppni úr stígvèli

Þýsk tónlist verður spiluð alla daga

Bjórbarn

 

---------------------------------------------------------------------------

Laugardagur:

Október"Rokk"Fest!!!

Mugison- http://www.myspace.com/mugison

Mamút - http://www.myspace.com/mammut

Who knew - http://www.myspace.com/wellwhoknew

Agent Fresco - http://www.myspace.com/agentfresco

-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Nánari upplýsingar verða veittar síðar.

Beer baby

 


Boðnir í viðtal á Útvarpi Sögu.

ÚS

Ég vildi vekja netta athygli á því að við Jens Guð verðum í viðtali á Útvarpi Sögu miðvikudagsmorguninn klukkan 08:10. En vegna þess að ég kem til með að missa af því, sökum þess að ég var boðinn í viðtal á ónefndri útvarpstöð hér í bæ á sama tíma, mun ég hlusta á endurtekninguna um kvöldið sama dag, milli klukkan 20:00 og 21.

fretrick_homar_474144

 

 



Færeyingar íhuga geimferðaráætlun.

Það hefur farið fram hjá mörgum að færeyjingar íhuga nú að senda aðra færeyinga út í geim. Ráðherra ferðamála færeyja,Heri Niclasen, segir allt koma til greina, jafnvel tunglgöngu. "Þetta er bara gamall draumur að rætast. Mig hefur alltaf langað til tunglsins" Segir Heri. Aðspurður um kostnað segir Heri lítið. "Við færeyingar erum þekktir fyrir dugnað og hjálpsemi."

Það hafa þegar 4 manns boðið sig fram í sjálboðavinnu við verkefnið, við þurfum nokkra í viðbót" Helsta vandamálið segir Heri vera líflegt fuglalíf í Færeyjum. Þeir geti verið fyrir í sjálfu skotinu. Áætlað er að 4 Færeyjingar haldi út í geim 21 Desember 2012, en það er einmitt dómsdagur. "Þannig að við höfum engu að tapa" Segir Heri bjartsýnn.

skutluskot

 

Titlingsvegur

Skúbb/Uppljóstrun ársins!! - Grýla snemma til byggða!

Grýlurnar

 

Óvenju hljótt hefur verið um lokun lögreglunnar á umfangsmikilli eiturlyfjaverslun á Sauðárkróki. Lögreglan á Norð-Vesturlandi hefur aldrei séð annað eins. Eiturlyfjasalan var rekin eins og hver önnur sælgætissjoppa með tilheyrandi afgreiðsluborði, vigt, innkaupapokum, umbúðapappír, reiknivél, sjóðsvél undir skiptimynt og seðla og þess háttar: E-pillur ( sem ég held að standi fyrir "Eigin pillur" einhverra hluta vegna) í einni skúffu, hass í annarri, amfetamín í þeirri 3ju og svo framvegis. Ótrúlega fjölbreytt og gott úrval og ýmsir gæðaflokkar.

Eiturlyfjaverslunin var með fastan verslunartíma frá fimmtudegi til sunnudags. Verslunarrekandinn er tæplega fimmtug athafnakona. Hún segist ekki nota eiturlyf sjálf heldur sé þetta bara hennar vinna, einföld og hreinleg. Hún er með góð sambönd, góða þjónustu og kúnnarnir treysti henni. Hún hefur áður fengið dóm fyrir eiturlyfjasölu en einnig komið víða við á öðrum vettvangi.

Til að mynda sem ein af Grýlunum, kvennarokksveitinni. 


Upptökur af samtali forseta Bandaríkjanna við Condomleeza Rice

George W Bush Condoleeza Rice

Fólk um allan heim á það oft til að misskilja George W Bush. Oftar en ekki er sá miskilningur byggður á öðrum miskilningi sem á sér stað innan veggja hvíta hússins. Hér eru áður óþekktar upptökur af George W Bush í samtali við Condomleeza Rice sem teknar voru upp þegar nýr leiðtogi kína tók völdum.


Jens Guð - Sönn smásaga -

Jens blogg1 

Jens Guð er góður vinur minn. Ég kynntist Jens um í kringum árið 2000. Það var einhvern tímann sem ég var að spila á piano á Wallstreet bar í Ármúla sem kauði sperrti eyrun. Þegar ég var búinn að spila og gekk að barnum að heimta bjór fyrir spilið kallaði hann hátt: "Þú spilar svona eins og Jerry Lee Lewis!!" Já, sagði ég. "Það er nú ekki alvanalegt að krakkar á þínum aldri séu mikið í þessari músík sko"

Ég settist við hliðina á guðinum og spjallaði vel og lengi við hann um tónlist. Aðalega upphaf rokksins, sem ég hef hvað mestu mætur á, en það sama um hvaða tónlist maður spjallar um við Jens Guð, hann veit nánast allt um alla músík sé diskó og fm 957 tónlist undanskilin.

Ég komst fljótlega að því hversu mikið Jens Guð hafði mikið vit á tónlistarsögunni og spjölluðum við mikið saman. Ég fór að gera mér ferðir oftar upp í Ármúla rétt til að hitta hann og spjalla og skálá öli við meistarann. Fljótt urðum við miklir mátar og honum líkaði vel við mína tónlist.

Það eru margar skemmtilegar sögur til af Jens Guð. Hér kemur ein af þeim:

-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Jens var einu sinni að moka Banana Boat vörum sínum út um allan bæ, en hann er með umboð fyrir Banana Boat á norðurlöndum. Það var leiðindaveður. Allt á bólakafi í snjó, hríð, slabb á götum og nýstis frost. Ekki hjálpaði til að Jens var á pínulitlum, beygluðum Renault Clio á spegilsléttum sumardekkjum. Jens bakkaði út úr þröngu stæði og ætlaði að gefa í áfram til að torfæra yfir mikinn snjóskafl sem hafði myndast á götunni. En ekki vildi betur til að Clioinn sat fastur.

Jens Guð gaf allt í botn og spólaði og spólaði, en allt kom fyrir ekki. Þá ákvað Jens Guð að drepa á bílnum og hlusta bara á útvarpið í staðinn, enda tilgangslaust að keyra í þessum snjóþunga. Í útvarpinu var einmitt verið að spila Þorraþrælinn með hverjum öðrum en honum sjálfum? Þegar Jens hafði hlustað á útvarpið í um 10-15 mín, gengu 3 unglingspiltar fram hjá bílnum með hjólabretti. Jens ákvað að biðja þá um að aðstoða sig með bílinn, því hann sæti fastur og þyrfti að vera kominn með vörur á sólbaðstofur áður en lokaði, enda klukkan orðin nokkuð margt. Samtalið var nokkurn veginn á þennan veg:

Jens Guð: Strákar, gætuð þið ekki ýtt á bílinn fyrir mig? ég er alveg pikkfastur!                                  

Einn stráksinn: Kostar 5000 kall.

Jens Guð: Jájá, ekkert mál....þetta er nú frekar léttur bíll svo þetta ætti að vera frekar auðvelt sko!

Strákarnir ýttu á bílinn og upp komst hann. Þegar strákarnir sáu að Jens ætlaði að keyra í burtu án þess að borga 5000 kallinn kallaði einn þeirra: "Heyrðu....5000 kallinn manni!" svaraði Jens á mót: "Já þið bara borgið mér hann síðar !!" og spændi í burtu, með fleiri vörur á sólbaðstofuna.

Jens Guð 1978

 

 

 

 


Hvað er að gerast með blaðamenn MBL á 21 öldinni ? ?

 

Með þessari frétt er bent á slóðina www.Politi.dk til að lesa heildarskýrslu varðandi fréttina, sem er sennilega einhver fréttvefur í Danmörku á dönsku. Hver í ANDSKOTANUM fer að lesa þessa frétt í heild sinni á dönsku aðrir en danir?? Er mbl.is að verða klikkaður vefur??? Á maður að nota "gömlu góðu" skóladönskuna í að lesa um hvernig danskir lögreglumenn haga sér í vinnu? Hvað er að þessum blaðamanni eiginlega ? ? ?

Það er allt í lagi með fréttina. "Já okei, frábært, flott búið, vonandi gengur þeim vel í framtíðinni bla bla bla" en til hvers er verið að setja slóð inn á danska síðu??? Hvernig eiga íslendingar að skilja það sem á henni stendur??? Ætlast blaðamaðurinn að maður fari að lesa á dönsku???


mbl.is Danska lögreglan beitt ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftirhermur

Eftirhermur geta verið eins hræðilega lélegar og vakið upp kjánahroll hjá áhorfendum, rétt eins og þær geta gefið þeim sterka gæsahúð. Til eru margvíslegar eftirhermur, sumar herma eftir röddum, aðrar eftir hreyfingum og enn aðrar eftir svipum fólks. Svo eru margar sem blanda þessu öllu saman, en tekst misvel. Einnig eru margar eftirhermur sem herma eftir söng. Það er að segja söngrödd. Og þar er Emma Taylor engin undantekning.

Emma Taylor, sem er brúða, getur hermt eftir Etta James.

Etta James er svört sönkona. Ekki nóg með það heldur eins sú allra besta sem uppi hefur verið. Í fljótu bragði myndi maður ætla að mjög erfitt væri að herma vel eftir rödd hennar. En Emma Taylor (brúðan) getur sungið nánast nákvæmlega eins, rétt eins og að drekka vatn. Hér kemur Emma Taylor fram í hæfileikakeppninni America's Got Talent og syngur lagið At Last með Etta James. Hún nær henni ótrúlega vel.

Klikkið á videoið til að skoða:

(Takið eftir að það er í raun ekki brúðan sem syngur, heldur búktalarinn sem heldur á henni)

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Siggi Lee Lewis

Höfundur

Siggi Lee Lewis
Siggi Lee Lewis

The problem with the world is that everyone is a few drinks behind

Jukebox

Blues Willis - Skeiðar fram á veg
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Buck Green ásamt Ástríki eftir fund
  • Sveinbjörn
  • Ástríkur
  • ...-promo-shot
  • ..._s_platters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 23618

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband