5.11.2008 | 17:46
44 forseti Bandaríkjanna
Barack Hussein Obama hefur verið kjörinn 44 forseti Bandaríkjanna og vil ég óska honum og öllum hans stuðningmönnum til hamingju með það. Obama virðist snjall náungi, ákveðinn og áreiðanlegur. Ég hins vegar var persónulega sammála John McCain í fleiri málum en Obama, sé litið til mála eins og Íraksstríðsins og efnahagsmála. Ég er líka ósammála McCain í öðrum hlutum sem ég tel Obama hafa rétt fyrir sér. Obama er tákngerfingur réttlætis og framfara. Það hafa jafnvel margir rebúblikanar sagt. Hann er meiri týpan sem sem sest niður milli tveggja ósáttra manna og ræðir leiðir til sátta. Þrátt fyrir reynsluleysi tel ég Obama frábæran mann og vonandi verður hann jafnfrábær sem forseti þessa frábæra lands mannréttinda og tækifæra.
Til hamingju Obama!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.11.2008 | 17:07
Just Eat/ Bara éttu.
Ég skráði mig sem notanda inn á justeat.is. Kerfið virðist í fyrstu mjög gott í alla staði. Allskonar veitingastaðir sem hægt er að panta mat frá, NEMA í Hafnarfirði. Í Hafnarfirði er bara hægt að panta mat frá 2 veitingastöðum. Dominos Pizza og Dong Huang, sem er sennilega kínastaður. Frábært úrval fyrir Hafnfirðinga!
Ég skráði mig inn sem notanda á Just Eat. Þessar fræknu upplýsingar fékk ég beint í andlitið:
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Hæ XXXXXXX
Ég nota Just-Eat.is þegar ég panta mér mat því það er fljótlegt og þá þarf ég ekki að muna nein símanúmer. Það er líka auðvelt að skoða matseðla alls konar veitingastaða og panta -allt á einum stað.
Sem Just-Eat "Plöggari" langar mig að athuga hvort þú vilt ekki prófa að panta mat í gegnum netið. Ef þú vilt prófa notaðu þá endilega linkinn hér fyrir neðan:
http://www.just-eat.is/pages/Reffer.aspx?userid=21969
Ef þú gerir það fæ ég 5000 punkta í fyrsta sinn sem þú pantar á Just-Eat.is, en þú færð að sjálfsögðu líka punkta fyrir það sem þú pantaðir.
Vonandi að þú getir notað þetta :)
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
"Sem Just-Eat "Plöggari langar mig að athuga hvort þú vilt ekki prófa að panta mat í gegnum netið." Jú það ég get! Að minnsta kosti frá 2 stöðum!
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.11.2008 | 16:21
Misskilningur! Ekki til sölu!
Snekkjan er ekki til sölu! Ég keypti hana sjálfur fyrir 3 mánuðum síðan og ég er ekki að selja hana. Svo er líka skekkja í fréttinni, því hún er bara 81 meter en ekki 82. Moskan er heldur ekki lengur til staðar því ég breytti henni í bar, sem er innréttaður nákvæmlega eins og Goodfellos í Ármúla. Ég er meira að segja með Jónas-lookalike sem barþjón! En bara mynd af Golla.
Snekkja Saddams til sölu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2008 | 13:33
55 Cadillac
Á Ebay er nú til sölu Cadillac DeVille árgerð 1955. Ég rakst á flekann þegar ég ég var einu sinni sem oftar að fletta bílunum á Ebaymotors. Þú getur fengið bílinn ef þú yfirbýður 8.600$.
Vélin er 8 sílendra 3-3-1 og skilar sennilega yfir 250 hestöflum. 3 gripa sjálfskipting og að sjálfsögðu vökvastýri sem er svo létt að það má stýra bílnum með því að blása á það. Hurðarnar í svona Cadillac eru segulstýrðar í læsingu svo það er hægt að loka hurðinni með litla putta, svo ekki sé minnst á að bíllinn er allur leðurklæddur og mælaborðið allt í krómi.
Ég veit ekki hvað innflutningur kostar á svona grip, en mér skilst að það fari eftir þyngd og vélastærð. Það væsir ekki um mann í farþegasætinu á þessum.
Dell Vikings:
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 14:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
31.10.2008 | 23:39
Danska kórónan á Alþingishúsinu okkar.
Hugsið ykkur ef Rússar hefðu bandaríska skjaldamerkið á Dúmuni. Frakkar hefðu ensku konunglegu kórónuna, kóróna stjórnarráðshúsið sitt, Bandaríkjamenn hefðu fána Kúbu yfirbreiddan yfir Pentagon.
Íslendingar hafa ennþá Konunglegu Dönsku Kórónuna framan á Alþingishúsinu. Í stað þess að hafa sem dæmi Íslenska skjaldamerkið okkar. Ég spyr HVAÐ ER AÐ?
Ég hringdi einhvern tíma í Sigurð G Tómasson útvarpsmann á Útvarpi Sögu í beinan útsendingarsíma og tjáði honum þessa skoðun mína. Honum virtist þetta vera mjög "eðlilegt" og "hluta af sögunni" sem Íslendingar ættu að vera stoltir af!
Persónulega er ég stoltari af sjálfstæði Íslendinga heldur en yfirgengi og kúgun dana hér á landi í aldir. En það er kannski bara ég?
30.10.2008 | 21:37
Skeljungur bannar starfsfólki sínu að blogga!
Skeljungur er nú orðin ríkiseign. Fyrirtækið stranglega bannar nú starfsfólki sínu að blogga, eða setja inn athugasemdir við annara manna blogg.
DÆMI:
Bloggari skúbbar um Björk Guðmundsdóttir og Jón Gnarr:
Björk og Jón hafa átt í leynilegu ástarsambandi um hríð og hyggjast nú giftast í sumar, öllum að óvörum.
Athugasemd starfsmanns Skeljungs:
HA?
BANNAÐ!
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Bannið er rökstutt með því að á óvissutímum sé áríðandi að starfsfólk aðhafist ekkert sem getur komið því sjálfu og fyrirtækinu illa. Engu breytir þó starfsfólkið bloggi undir dulnefni. Það er hægt að rekja IP tölur til þess og fyrirtækisins.
Þannig að ef einhver starfsmaður Skeljungs heitir Friðrik þýðir ekkert fyrir hann að skrifa athugasemd undir nafninu Sebastian. IP talan kemur upp um hann, og hann er rekinn.
"Það má ekki taka áhættu með neitt slíkt fyrr en allir óvissutímar eru að baki" Segir Skeljungur.
Er svona bann löglegt?
Spaugilegt | Breytt 31.10.2008 kl. 00:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.10.2008 | 22:17
Skúbb! Nýr stjórnmálaflokkur!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.10.2008 | 21:24
Das Boot.
Ég hef löngum viljað vita hvernig "Stígvélið" er afgreitt. Stígvélið, eða Das Boot eins og það er kallað á þýsku, er 2 lítra stígvél úr gleri. Í það er settur bjór og svo keppast menn við að tæma dallinn á sem skemmstum tíma.
Ég hefi aldrey litið á þessa limþreytu sem leið til að verða drukkinn á sem skemmstum tíma. Áhrifin eru bara bónus, rétt eins og gullbikar fyrir fimmgang á íslandsmeistaramóti í hestaíþróttum. Ég pantaði mér einu sinni svona Das Boot í gegnum internetið og beið spenntur eftir sendingunni. Mér til sárra vonbrigða var stígvélið ekki 2 lítra bjórglas heldur staup-stígvél. Ég hlóp að tölvunni og fletti pöntuninni upp og sá þá að það stígvél sem ég pantaði var bara stækkuð mynd af staupi.
Hérna er video af náunga að afgreiða Das Boot. Hann er nokkuð snöggur:
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 21:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
9.10.2008 | 20:25
Leoncie heldur áfram að hneyksla heimsbyggðina! Og smá Ding Dong..
Leoncie er ekki látin eins og áður hafði verið talið. Hún býr nú í London og er við hryssuheilsu. Leoncie var að koma með nýtt lag sem skelfur heimsbyggðina. Laginu "Enginn Prikantur Hér" líkja menn henni við Marilyn Manson nútímans eða Elvis Presley fortíðarinnar.
"Kynæsandi mjaðmarheyfingar og vægast sagt stórhneykslanlegur texti" segir í tónlistar ritinu Euro-Trash. Í laginu koma m.a fram orð eins og, "glim-skvísa" og "nakin". Ein setningin er líka á þessa leið: "þú getur beddlað og beddlað". Lagið er hér í fullri lengd, eða "fullri reisn" eins og Leoncie tjáði blaðamanni Euro Trash tímaritsins þegar hún sagði honum að myndbandið væri komið á youtube. Varað er við myndum og texta við lagið:
Til þess að hafa þessa færslu ekki bara asnalega og leiðinlega set ég hér inn skemmtilega upptöku með Pétri Jóhanni og Dodda litla gera síma-at í löggunni í útvarpsþættinum Ding Dong hér um árið:
Tónlist | Breytt s.d. kl. 20:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.10.2008 | 18:43
Rússar kaupa sér "vináttu" Íslendinga.
Rússar nota tækifærið og ota nú peningum framan í svanga og hungurmorða íslendinga, sem búa á "Atlantshafs flugmóðurskipinu". Þeir semsagt, þykjast nú vera bestu vinir okkar og vilja lána okkur 6-800 milljarða ISK, sem við komum til að borga þeim margfalt til baka á örfáum árum.
Það þarf enginn að segja mér að rússar horfi ekki gott til glóðarinnar í framtíðinni. Rússum hefur aldrey er er ekki ennþá í dag verið treystandi. Þeir horfa til framtíðarinnar á Ísland, sem risastórt flugmóðurskip nálægt Bandaríkjunum. Ef rússar koma hingað í framtíðinni, og setjast að, mun ég flytja rakleiðis til Bandaríkjanna, ef ég verð þá ekki þegar farinn.
Guðni og Pútín | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Siggi Lee Lewis
Jukebox
Bloggvinir
- aloevera
- atlifannar
- hergeirsson
- asdisran
- gattin
- binnag
- brandarar
- valgeir
- gudbjornj
- gudnim
- gullilitli
- gustaf
- plotubudin
- skinkuorgel
- heida
- drum
- ingvarvalgeirs
- irma
- jakobsmagg
- jea
- jevbmaack
- jensgud
- presley
- johanneshlatur
- kiddirokk
- markusth
- omarragnarsson
- palmig
- robertb
- runarf
- siggith
- stormsker
- th
- veraknuts
- steinibriem
- metal
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar