Drukknir wanna be mótmælendur.

Fulla unglinga sem þyrstir í piparúða í augun sín, skemma einn skemmtilegasta þátt ársins fyrir alldri þjóðinni. Í ofanálag kalla þeir sig fulltrúa Íslensku þjóðarinnar. Þetta eru ekki mótmæli, heldur skemmdarverk. Fólk er allan gamlársdag að gera sig tilbúið fyrir kvöldið, en sest niður þessa tvo tíma með hvítvín og vínber til að slaka á í amstri dagsins. Eftir 40 mínútur af þættinum dettur fullum fávita að brenna leiðslur búnaðar sem hjálpar til við að senda beina útsendinguna inn á heimili fólks.

protester.jpg

Þetta er enn eitt dæmið sem talar fyrir því að lögreglan á að grafa piparúðan og taka upp skammbyssur. Minnsta kosti að brúka kylfurnar! Til hvers eru lögreglumenn með kylfur? Til að getað sprautað piparúða?

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Kryddsíld lokið vegna skemmdarverka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er nú voða leitt að þú hafir misst af þættinum þínum en þegar húsnæðislánin þín halda áfram að hækka jafn hratt og launin þín lækka þá ferðu sennilega smám saman að skilja þetta fólk betur.

Páll Guðnason (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 16:27

2 Smámynd: Róbert Björnsson

Þú virðist nú hafa byrjað aðeins of snemma á hvítvíninu Siggi minn...  Ekki hafði ég nú lyst á að horfa á tilgerðarleg drottningarviðtöl við þessa há-heilögu stjórnmálaleiðtoga sem með algerri vanhæfni sinni gerðu þjóðina gjaldþrota...svo mér er nokk sama þó útsendingin hafi verið rofin.  Verst að piparúðanum var ekki beitt á þau...hin raunverulega skríl.

Róbert Björnsson, 31.12.2008 kl. 17:06

3 Smámynd: Siggi Lee Lewis

Páll Guðmundsson: Ég er að leigja húsnæði og samkvæmt gríðarlegum lækkunum á húsaleigumarkaði, hafa launin hækkað töluvert miðað við afborganir á íbúðinni. Hjólhýsa og jeppafólkið er það faólk sem þú ættir frekar að tala við. Ég kannast ekki við þessa kreppu af eigin reynslu.

Róbert Björnsson: Sæll vertu meistari! Ég fékk mér fyrsta hvítvínsglasið meðan við mamma steiktum humarinn. Það var um klukkan hálf sjö leytið sem mér finnst nú ekki mjög snemmt miðað við gamlárskvöld. Veit reyndar ekki hvað tímasetning hvítvínsneyslu minnar kemur þessari umræðu við.

Það mættu heldur engar drottningar í viðtalið, þvert á móti vantaði kónginn sem komst ekki inn vegna fullu unglinganna. Mér er líka persónulega sama þó útsendingin hafi verið rofin. Hins vegar er afar áhugavert hversu "fulltrúar Íslands" eru málefnalegir. Og reyndar, var piparúðanum beitt á þann makalausa hóp.

Mér finnst einnig mjög athyglisvert að "Fulltrúar Íslands" skulu hafa ráðist á tæknimenn stövar 2. Tæknimenn sem unnu einmitt við það að koma skilaboðum þeirra á framfæri. En þetta eru auðvitað fífl.

Siggi Lee Lewis, 31.12.2008 kl. 22:03

4 Smámynd: Jens Guð

  Ég ætla ekki að afsaka skemmdir á tækjabúnaði Stöðvar 2.  Jafnframt er ég ekki í neinni þeirri stöðu að hafa farið verulega illa út úr bankahruninu.  Né heldur hef ég haft rænu á að taka þátt í mótmælum.  En ég hef samúð með gömlu fólki sem hefur tapað ævisparnaði upp á milljónir króna,  lífeyrisréttindum og öðru slíku.

  Kona sem rekur verslun í Hafnarfirði sagði mér í gær að hún hafi tapað húsi sínu um jólin.  Þetta er kona á miðjum aldri sem alltaf hefur staðið við sitt og hélt að hún væri á grænni grein.  Afborganir hennar vegna myntkörfuláns hafa hinsvegar hækkað svo skart að síðasta mánaðargreiðsla var komin upp í 270 þúsund kall.  Núna leigir hún sér húsnæði á helmingi lægra verði en er búin að tapa húsinu sínu sem hún hélt sig vera búna að eignast.

  Systir besta vinar míns skipti á húsnæði og fékk 4 milljónir í milligjöf.  Þessar 4 millur hefur bankinn núna afskrifað.

  Þetta fólk er svekkt og reitt.

Jens Guð, 3.1.2009 kl. 00:59

5 Smámynd: Siggi Lee Lewis

Jens: Ég er sammála þér. Öll þessi atriði eru góðar ástæðu til að mótmæla. Hins vegar sé ég ekki samanburðinn í því að mótmæla og að brenna víra, tæki og tól Stöðvar 2, ráðast á tæknifólk og brjóta rúður. Stöð 2 er einmitt einn sá miðill sem kemur skilaboðum mótmælenda á framfæri. Þetta fólk gerir lítið úr hinum raunverulegu mótmælendum.

Siggi Lee Lewis, 4.1.2009 kl. 16:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siggi Lee Lewis

Höfundur

Siggi Lee Lewis
Siggi Lee Lewis

The problem with the world is that everyone is a few drinks behind

Jukebox

Blues Willis - Skeiðar fram á veg
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Buck Green ásamt Ástríki eftir fund
  • Sveinbjörn
  • Ástríkur
  • ...-promo-shot
  • ..._s_platters

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband