23.8.2008 | 19:27
Fréttamennska stöðvar 2.
Ég horfði á sjónvarpsfréttir stöðvar 2 í kvöld. Fyrstu fréttirnar voru um handbolta "afrek" íslendinga í Peking. Fyrsta fréttin var um stöðu íslendinga á ólympíuleikunum, og viðtöl við fólk í kringlunni (þar sem reyndar 90% þeirra höfðu engan áhuga á þessu rugli og ætluðu ekki að fylgjast með úrslitaleiknum.)
Önnur fréttin í handboltahrynufréttum stöðvar 2 snerist um faðir eins handbolta mannsins og ég man ekki um hvað sú þriðja var, enda ómerkileg. Þessar fréttir tóku að minnsta kosti 6-7 min.
Önnur frétt stöðvar tvö var hins vegar áhugaverð. Hún var um varaforsetaefni Barack Obama. Þeir ætla að koma fram í kvöld í live TV í fyrsta skipti, en Joseph Biden hefur samt sem áður verið sá maður sem mest hefur gagnrýnt Obama fyrir reynsluleysi í stjónmálum. Þetta er raunverulega stærsta fréttin. Þessi frétt tók um það bil 50 sek.
Næsta frétt var um mink sem hafði slæðst til krakka einhverstaðar út á landi. Fréttin var löng og ítarleg. Myndir birtust af minknum í búri og ítarlegt viðtal var við heimilisföðurinn (eða dýralækni, man ekki hvort var) Þessi frétt tók 5 mínútur.
Því spyr ég, hvað er að gerast hjá íslenskum fréttamönnum??? Hafa þeir ekkert annað að segja frá öðru en handbolta og minkum???
Um bloggið
Siggi Lee Lewis
Jukebox
Bloggvinir
-
aloevera
-
atlifannar
-
hergeirsson
-
asdisran
-
gattin
-
binnag
-
brandarar
-
valgeir
-
gudbjornj
-
gudnim
-
gullilitli
-
gustaf
-
plotubudin
-
skinkuorgel
-
heida
-
drum
-
ingvarvalgeirs
-
irma
-
jakobsmagg
-
jea
-
jevbmaack
-
jensgud
-
presley
-
johanneshlatur
-
kiddirokk
-
markusth
-
omarragnarsson
-
palmig
-
robertb
-
runarf
-
siggith
-
stormsker
-
th
-
veraknuts
-
steinibriem
-
metal
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það alvarlegasta í þessu öllu saman er að Sigmundur Ernir bar fram nafn Bidens sem "Bidden"...en ekki "Bæden".
Róbert Björnsson, 23.8.2008 kl. 21:40
Já einmitt! Sigmundi hefur legið svo á færa minkafréttina til íslendinga að hann hefur misst sig í öllum talburði....
Siggi Lee Lewis, 24.8.2008 kl. 00:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.