Færsluflokkur: Ferðalög
23.1.2010 | 17:58
"Nei, tú skalt bara minnast til tað næstu ferð"
Jens Guð, bloggari, rithöfundur og útgefandi með meiru hafði sagt mér í mörg ár að Færeyjingar væru ljúfari en lömb, og vildu gera allt fyrir íslendinga sem þeir gætu. Hvort sem við kæmum til Færeyja, eða þeir hingað, þá vildu færeyjingar íslendingum allt vel. Ekki nóg með það heldur nánast dáðu Færeyjingar Ísland og íslendingar Færeyjinga. Þessu tók ég með fyrirvara. Í bili.
Margar heyrði ég sögurnar frá Jens um Færeyjinga. Flestar nokkuð ótrúverðugar og ótrúlegar. Það gat ekki verið að ein þjóð dáðist að Íslandi svona mikið. Ég spurði Jens Guð út í þetta. Jens sagði mér að það væri gagnkvæm væntumþykja til Færeyjinga þó reyndar skorti upplýsing um Færeyjar hér á landi. Sem er rétt. Íslendingar vita meira um Kuala Lumpur en Klaksvik í Færeyjum. Sem er synd.
Mér fannst Guðinn alltaf ýkja dálítið með sögur sínar af ferðum sínum til Færeyja. Dæmi var að maður gæti gengið inn á hvaða heimili sem er, óboðinn og fullur og þegið pönnukökur
Færeyjingar væru æstir í að bjóða íslendingum pönnukökur. Þetta fannst mér ansi magnað og prófaði þetta sjálfur þegar ég fór í fyrsta skipti til Færeyja. Það stóð heima.
Færeyjar get ég ekki líkt við annað en himnaríki. Töllvörðurinn á flugstöðinni er lyklapétur.
Ég hafði keypt einni flösku of mikið af víni að sögn tollvarðarins. Ég var í vímu af þægindar andrúmslofti og vellíðu. Smá drukkin líka.
Ég sagði fyrirgefðu, "ég bara skila flöskunni til baka og biðst innilegrar afsökunar"
Tollvörðurinn brosti og lokaði töskunni og sagði "Nei, tú skalt bara minnast til tað næstu ferð" blikkaði mig og renndi flöskunni ofan í töskuna aftur.
Þegar til Torshavnar var komið, eftir 30-40 min rútuferð, leið mér eins og engli. Yfirvegunin var svo þvílík og fólkið var svo frábært að ég trúi því varla enn. Ekki skemmdi það að sitja við hliðina á Jens Guð. Ég þarf að fara aftur til Færeyja til að ná því hversu færeyjingar eru elskulegir í garð íslendinga. Ég næ ekki ástæðunni., en einhverra hluta vegna þykir mér vænst um færeyjinga til baka.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 18:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2008 | 22:11
Færeyingar íhuga geimferðaráætlun.
Það hefur farið fram hjá mörgum að færeyjingar íhuga nú að senda aðra færeyinga út í geim. Ráðherra ferðamála færeyja,Heri Niclasen, segir allt koma til greina, jafnvel tunglgöngu. "Þetta er bara gamall draumur að rætast. Mig hefur alltaf langað til tunglsins" Segir Heri. Aðspurður um kostnað segir Heri lítið. "Við færeyingar erum þekktir fyrir dugnað og hjálpsemi."
Það hafa þegar 4 manns boðið sig fram í sjálboðavinnu við verkefnið, við þurfum nokkra í viðbót" Helsta vandamálið segir Heri vera líflegt fuglalíf í Færeyjum. Þeir geti verið fyrir í sjálfu skotinu. Áætlað er að 4 Færeyjingar haldi út í geim 21 Desember 2012, en það er einmitt dómsdagur. "Þannig að við höfum engu að tapa" Segir Heri bjartsýnn.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 22:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Siggi Lee Lewis
Jukebox
Bloggvinir
- aloevera
- atlifannar
- hergeirsson
- asdisran
- gattin
- binnag
- brandarar
- valgeir
- gudbjornj
- gudnim
- gullilitli
- gustaf
- plotubudin
- skinkuorgel
- heida
- drum
- ingvarvalgeirs
- irma
- jakobsmagg
- jea
- jevbmaack
- jensgud
- presley
- johanneshlatur
- kiddirokk
- markusth
- omarragnarsson
- palmig
- robertb
- runarf
- siggith
- stormsker
- th
- veraknuts
- steinibriem
- metal
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar