24.9.2008 | 20:55
Skúbb/Uppljóstrun ársins!! - Grýla snemma til byggða!
Óvenju hljótt hefur verið um lokun lögreglunnar á umfangsmikilli eiturlyfjaverslun á Sauðárkróki. Lögreglan á Norð-Vesturlandi hefur aldrei séð annað eins. Eiturlyfjasalan var rekin eins og hver önnur sælgætissjoppa með tilheyrandi afgreiðsluborði, vigt, innkaupapokum, umbúðapappír, reiknivél, sjóðsvél undir skiptimynt og seðla og þess háttar: E-pillur ( sem ég held að standi fyrir "Eigin pillur" einhverra hluta vegna) í einni skúffu, hass í annarri, amfetamín í þeirri 3ju og svo framvegis. Ótrúlega fjölbreytt og gott úrval og ýmsir gæðaflokkar.
Eiturlyfjaverslunin var með fastan verslunartíma frá fimmtudegi til sunnudags. Verslunarrekandinn er tæplega fimmtug athafnakona. Hún segist ekki nota eiturlyf sjálf heldur sé þetta bara hennar vinna, einföld og hreinleg. Hún er með góð sambönd, góða þjónustu og kúnnarnir treysti henni. Hún hefur áður fengið dóm fyrir eiturlyfjasölu en einnig komið víða við á öðrum vettvangi.
Til að mynda sem ein af Grýlunum, kvennarokksveitinni.
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Um bloggið
Siggi Lee Lewis
Jukebox
Bloggvinir
- aloevera
- atlifannar
- hergeirsson
- asdisran
- gattin
- binnag
- brandarar
- valgeir
- gudbjornj
- gudnim
- gullilitli
- gustaf
- plotubudin
- skinkuorgel
- heida
- drum
- ingvarvalgeirs
- irma
- jakobsmagg
- jea
- jevbmaack
- jensgud
- presley
- johanneshlatur
- kiddirokk
- markusth
- omarragnarsson
- palmig
- robertb
- runarf
- siggith
- stormsker
- th
- veraknuts
- steinibriem
- metal
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú ert kræfur, aðeins tvær koma til greina, LB eða IR. Leitt mál.
Magnús Geir Guðmundsson, 24.9.2008 kl. 21:43
TIL MAGNÚSAR: Já sæll, ég hef þetta eftir staðföstum heimildarmanni mínum.
Siggi Lee Lewis, 24.9.2008 kl. 21:58
Hvað segirðu?
Sigurður Þórðarson, 24.9.2008 kl. 22:58
Þetta er svakalegt. Nú þarf maður að rifja upp hverjar voru í Grýlunum og nota útilokunaraðferð. Grýlurnar voru fimm þegar hljómsveitin var fjölmennust. Þetta er pottþétt ekki Ragga Gísla eða Herdís sem nú er kona Gísla Helgasonar flautuleikara. Þá eru eftir LB, IR og LG sem allar búa fyrir norðan.
Júlíus Hamar (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 23:00
Sæll Siggi Lee Lewis.
Það skyldi þó aldrei vera...............................................x.
Fylgist með.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 01:09
Hér er varpað fram sprengju og saklausar Grýlur eiga rétt á að vera sýknaðar. Komdu með "hint" svo hægt sé að útiloka þær saklausu.
Jóhannes (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 01:23
Vissu fleiri - en þögðu þó...
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 25.9.2008 kl. 15:17
Þetta vita allir nordlendingar...
Gulli litli, 25.9.2008 kl. 20:33
Sigurður Þ: Sæll nafni. Jú ég get svo svarið þetta. Þakka þér fyrir innlitið. (Skuldar mér bjór)
Júlíus: Þetta er ekki Ragga Gísla.
Þórarinn Þ: Jú passar.....hafðu samt hljótt um það.
Jóhannes: Viðkomandi er kvenkyns.
Helga Guðrún: Ég er mikill aðdáandi þinn. Takk fyrir innlitið.
Eggert: Það er ekkert mál að redda heróíni.....hringdu bara í 118.
Gulli: Nei, ég er ekki norðlendingur.
Siggi Lee Lewis, 25.9.2008 kl. 22:11
Jæja, á ekki að fylgjast með leiknum hjá Fram og Keflavík? Eða er það Fram og Aftur? Hvar ætli sé besta verðið á gúmmístígvélum?
Jens Guð, 25.9.2008 kl. 22:51
Jens: Framhjá Keflavík er Sandgerði. Og svo Aftur til Keflavíkur, en ég er einmitt Sandgerðingur. Ódýrustu gúmmístígvélin færðu hjá Ísfell efh en svo skemmtilega vill til að ég er einmitt að vinna þar!
Siggi Lee Lewis, 25.9.2008 kl. 23:00
Nú, ég hélt að þú væri ameriski píanóleikarinn með sama nafni er flæktist hingað fyrir nokkrum árum og allir hafa haldið að væri auðvitað sonurinn sem Jerry Lee Lewis hafnaði!?
Magnús Geir Guðmundsson, 27.9.2008 kl. 01:51
Neinei ég er nú bara sonur föður míns.
Siggi Lee Lewis, 27.9.2008 kl. 21:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.